Komið þið sæl. Ég heiti Asa Dotzler og vinn hjá Mozilla. Ég ætla að sýna ykkur hversu auðvelt það er að taka Firefox í notkun. Farið á slóðina getfirefox.com og smellið á græna niðurhalshnappinn á síðunni til að vista Firefox á skjáborð tölvunnar. Lokið vafranum sem þið eruð að nota og tvísmellið á Firefox innsetningaríkonið til að hefja innsetningu. Fylgið svo leiðbeiningum á skjánum. Að þessu loknu verður Firefox uppsett í tölvunni. Firefox getur jafnvel afritað persónulegar upplýsingar úr gamla vafranum. Til dæmis bókmerktar síður og lykilorð. Þegar þú hefur lokið við innsetningu forritsins getur þú vafrað um vefinn með Firefox. Hraðvirkur, öruggur og persónulegur vafri frá Mozilla.